Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Sigurður Jónsson
  • Staður: Árnes

Auglýsing

Könnun

Eigum við að ganga í Evrópusambandið og taka upp Evru?

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

MOGGABLOGG

31. maí 2008 klukkan 00:14
Ágætu lesendur.

Ég hef nú ákveðið að færa blogg mitt yfir á Moggabloggið. Pistlar mínir verða á:

www.sjonsson.blog.is


Vona að þið haldið áfram að lesa þar.

Kveðja

Sig.Jónsson
Sigurður Jónsson

LANDNÁMSDAGUR

30. maí 2008 klukkan 14:05
      Landnámsdagur 2008Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Laugardaginn 31. maí,   

Dagskráin hefst kl. 10:00

  • Opið á tveimur bæjum í sveitinni frá kl 10:00-12:00.

Reykjahlíð á Skeiðum,  opið fjós, nýfædd lömb, landgræðsla o.fl. 

Skaftholt,  sjálfbær búskapur, gróðurhús, ostagerð o.fl. 
Báðir bæir hafa hlotið umhverfisviðurkenningu.

 
  • Landgræðsla ríkisins, býður upp á fræðslu- og gönguferð kl. 10:30 frá Reykjahlíð á Skeiðum.
 
  • Skógrækt ríkisins,  býður í gönguferð í Þjórsárdalsskóg kl 13:00.

Lagt af stað frá nýju göngubrúnni norðan Sandártungu.  Skilti við Þjórsárdalsveg.

 
  • Bæjarrústirnar að Stöng,  sérfræðingur frá Fornleifavernd ríkisins á staðnum

kl. 11:00-13:00.

  Þjóðveldisbærinn opinn frá 13:00:Dagskrá verður í bænum frá  kl. 14:00 - 17:00
  • Handverk. Þingborgarkonur stunda forn handverk við langeldinn.
  • Víkingar. Félagar úr víkingahópnum Hringhorna frá Akranesi og fleiri víkingar verða á staðnum og bregða á leik.
  • Tónlist. Þjóðleg tónlist í umsjá Magneu Gunnarsdóttur; einsöngur, tvísöngur, víóluleikur, harmonikuleikur, djamba tromma, stiginn vikivaki, fjöldasöngur ofl.
  • Sagnamenn:   

Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, fyrrum bæjarvörður í Þjóðveldisbæ

“Gaukur gengur aftur”

Bjarni Harðarson, þingmaður  “Flagðkonan og kristnidómurinn í Þjórsárdal”

Jón Eiríksson bóndi í Vorsabæ: “Olavur Tvennumbrúni landnámsmaður á Skeiðum”

Einar Ólafsson, rithöfundur “Landnámsmenn í Gnúpverjahreppi, Þrándur mjögsiglandi og Þorbjörn laxakarl”

  • Örmessur í litlu kirkjunni,  sr. Axel Árnason.
  • Þjóðlegar veitingar, kjötsúpa að hætti landnámsmanna og reykt sauðalæri úr sveitinni
  ____________________________________________ 

Hólaskógur,  opið hús og fjórhjólaferðir  kl. 10:00-12:00

Félagsheimilið Árnes opið frá kl. 19:00-  01:00, landnámstilboð.

Sigurður Jónsson

HÆGRI UMFERÐ o.fl.

27. maí 2008 klukkan 00:16
  • Já,það er merkilegt að rifja upp að 40 ár skulu vera liðin frá því við breyttum yfir í hægri umferð. Það var mikil framsýni að stíga það skref þá. Við getum rétt ímyndað okkur ef það ætti að gerast nú miðað við alla umferðina og umferðamannvirkin. það væri útilokað. Merkilegt var líka hvað þetta tókst allt vel og hvað allir voru fljótir að tileinka sér breytinguna. Þá eins og núna voru auðvitað raddir sem voru á móti og sáu allt ómögulegt við það að breyta úr vinstri umferð yfir í hægri. En sem betur fer var ekki hlustað á afturhalsöflin og nú eru allir sannfærðir um að það var rétt ákvörðun á sínum tíma að taka upp hægri umferð.
  • Það er skemmtilegt að sitja heima og geta horft á beinar úrsendingar frá knattspyrnulikjunum. Í kvöld fylgdist ég með leik Grindavíkur og Breiðabliks. Hreint ótrúlegur leikur og góður sigur Grindvíkinga. Sumir hafa haldið að þeir færu beint niður aftur.Það gera þeir ekki spili þeir áfram svona vel.
  • Í kvöld komu jákvæðar fréttir frá Akranesi varðandi móttöku þeirra á flóttafólki. Fjölmennur fundur var haldin þar sem greint var frá að fundarmenn hefðu almennt verið jákvæðir. Auðvitað getum við Íslendingar ekki skorast undan því að rétta hjálparhönd því fólki sem hefur lent í hörmungum í hinum stóra heimi. Auðvitað er okkar framlag ekki stórt miðað við allan fjöldan sem þarf á hjálp að halda. Við sýnum viljann og stuðning okkar með því að taka á móti þessu fólki. Auðvitað getur Akranes tekið við flóttafólki. Bent hefur verið á að 9 sveitafrélög hafa annast móttöku flóttafóplks og það hafi gegngið vel.
  • Málflutningur og framganga varaformanns Frjálslyndaflokksins gerir ekkert annað en skaða okkar málstað og verður til þess að hleypa illu blóði í samfélagið á Akranesi. Það er örugglega mikill meirihluti Akurnesinga á móti málflutningi Magnúsar.

Sigurður Jónsson

GENGUR EKKI

23. maí 2008 klukkan 12:29
  • Það gengur ekki að gefa út leyfi til hrefnuveiðaþegar helmingur ríkisstjórnarinnar segist vera á móti hvalveiðunum. Hvers vegna í óskupunum eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins að gera þetta þegar Samfylkingin er á móti. Svo er það auðvitað spurning hvort þingmeirihluti er fyrir að leyfa veiðaranar. Þetta er mjög furðuleg staða í stjórnarsamstarfi og þetta er ekki eina málið. Misvísandi yfirlýsingar koma frá flokkunum í virkjanamálum og fleiri málum. Þetta gengur ekki í stjórnarsamstarfi.
  • Tíkin sem kennd er við pólitík tekur sífellt á sig furðulegri myndir í Reykjavík. Ég hélt að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefði slitnað á prinsipmáli þ.e. að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki að skattpeningar borgara væru notaðir í útrásarverkefni. Þessu var ég sammála. Nú virðist komin upp sú staða að hægt sé að leggja þetta prinsipmál til hliðar. Er nú svo komið að Villi þáverandi borgarstjóri og Björn Ingi voru bara að gera ágætis hluti að mati 6 menninganna. Hvers vegna var þá verið að slíta meirihlutanum. Var tilgangurinn einuningis að koma Villa frá? Allavega gnga þessi vinnubrögð ekki upp.
  • Hvað er eiginlega að gerast með smíði á nýrri Vestmannaeyjaferju? Er samgönguráðherra að undirbúa að fresta öllu saman? Það hlýtur að vera krafa Eyjamanna að horft sé til framtíðar og almennileg,vel útbúin ferja sé smíðuð. Það verður að horfa til framtíðar og fá lausn sem getur þjónað Vestmannaeyingum og öðrum næstu árin.Eyjamenn eiga rétt á almennilegri lausn.
Sigurður Jónsson

ALLTAF JAFN HISSA

20. maí 2008 klukkan 23:53
  • Enn og aftur berast okkur fréttir um það að verðlag hér á landi sé það hæsta í Evrópu. Alltaf þegar svona fréttir eru sagðir er rætt um að fara þurfi í saumana á þessu og rannsaka hvernig í óskupunum standi á þessu. Viðskiptaráðherra boðar að allt mögulegt eigi að gera en ekkert gerist. Við fáuum engar raunverulegar skæyringar á því hvers vegna í óskupunum verðlag hér þarf að vera það hæsta í Evrópu. Við erum ekki örfáum prósentum yfir meðaltalinu heldur 64%. Þetta gengur ekki.
  • Hver er eiginlega tilgangurínn með því að vera að veita leyfi til veiða á 40 hrefnum? Þetta skiptir okkur engu í tekjum, en við erum að taka mikla áhættu með að fórna miklum hagsmunum fyrir pínulitla hagsmuni. Að undanförnu hefur verið unnið mikið starf í að byggja upp hvalaskoðunarferðir fyrir ferðamenn sem sækja landið heim. Þetta hefur s´fellt verið vaxandi atvinnugrein og skilað okkur miklum tekjum. Hvers vegna að vera að taka áhættu að að eyðileggja fyrir okkur í þessum efnum með veiðum á 40 hrefnum.
Sigurður Jónsson

SAMSÆRISKENNING

17. maí 2008 klukkan 12:54
Það er merkilegt að fylgjast með umræðunni um heilbrigðismálin. Vinstri grænir ásamt Framsóknarflokknum hamast eins og þeir geta að útbúa samsæriskenningar um að Sjálfstæðismenn stefni ótrauðir að því að einkavæða allt heimbrigðiskerfið. Dregin er upp sú mynd að með því muni allur kostnaður hækka gífurlega og að við siglum inní banaríska kerfið. Það verði útilokað fyrir venjulegt launafólk að fá heilbrigðisþjónustu. þeir ríku muni geta keypt sig fram fyrir biðraðirnar. Þetta er vissulega ekki glæsilegt ef satt reyndist. En er það svo? Það hefur marg oft komið fram að Sjálfstæðisflokkurinn hefur það ekki á sinni stefnuskrá að einkavæða allt heilbrigðiskerfið. Ég hef setið ansi marga landsfundi Sjálfstæðisflokksins og aldrei nokkurn tíma hefur verið samþykkt að gera þessar breytingar á heilbrigðiskerfinu sem VG og Framsókn tala um að standi til að gera.
Grundvallaratriði í stefnu Sjálfstæðisflokksins hefur verið og er að allir þegnar landsins eigi aðgang að heilbrigðisþjónustunni án tillits til efnahags.
Aftur á móti er unnið að því að skoða hvernig fjármagnið sem úthlutað er til heilbrigðismála geti nýst sem best. Í dag er málum þannig háttað að víða er þjónustan í einkarekstri. Hér í sveitarfélaginu eru þvær stofnanir sem sjálfseignastofnir reka. Önnur stofnunin er að Blesastaðir, sem er dvalarheimili fyrir aldraða. Hitt er heimili fyrir þroskahefta,sem staðsett er í Skaftholti.
Bæði þessi heimili eru rekon af miklum myndarskap og örugglega á mun ódýrari hátt en ef ríkið sæi um reksturinn. Er eitthvað að þessu fyrirkomulagi? Ég held að flestir hljóti að vera sammála að svo er ekki.Á þessum stöðum er ríkið að fá mun betri þjónustu fyrir sína fjármuni heldur en ef það sæi sjált um heimilin. Er það ekki aðalatriðið. Á þennan hátt getum við veitt fleirum góða þjónsutu.
Það er erfitt að átta sig á hver tilgangur Vinstri grænna og Framsóknar er með sínum samsæriskenningum. Fólk sér vonandi í gegnum áró'ður þeirra.
Sigurður Jónsson

BOLTINN RÚLLAR O.FL.

13. maí 2008 klukkan 16:36
  • Nú þegar enska boltanum er að ljúka hefst vertíðin að fullu hér á landi. Við Tottenham aðdáendur eru sæmilega sáttir með tímabilið og erum sannfærðir um að liðið verður í toppbaráttunni á næsta tímabili.
  • Ekki er því að neita að maður saknar þess að ÍBV skuli ekki epila í efstu deild (Landsbankadieldinni). Nú verður að setja allan kraft í að komast uppúr 1.deildinni. Byrjunin lofar góðu eftir sigur í fyrsta leik. Það skiptir svo miklu máli fyrir samfélagið í Eyjum að eiga lið í efstu deild. Það skiptir líka máli fyrir okkur sem eigum ræturnar í Eyjum að geta farið á völlinn á fastalandinu og verið stolt af okkar liði meðal þeirra bestu.
  • Eftir að hafa fylgst með Víði í Garði náið í 16 ár  fylgist maður auðvitað spenntur með hvernig liðinu muni ganga. Vonandi tekst liðinu að ná góðum árangri í 2.deildinni og gaman væri ef Víði tækist að komast í 1.deildina.Víðir á sér svo merka sögu á knattspyrnusviðinu og knattspyrnuáhugi er mikill í Garðinum,svo vonandi tekst að ná góðum árangri í sumar.
  • Hér í sveitasamfélaginu er mikill áhugi á knattspyrnu,þótt ekki sé keppt í efstu deildum. Núna á fimmtudaginn fer fram formleg vígsla á sparkvelli við skólann.Slíkur völlur á eftir að koma að góðu gagni fyrir knattspyrnuiðkendur. Til að bæta enn frekar aðstöðuna fyrir íþróttaiðkun þyrftum við að byggja eitt þokkalegt íþróttahús. Það yrði mikil lyftistöng fyrir sveitarfélagið.
  • Hugmynd séra Björns Sveins í Útskálakikirkju er góð að halda sérstaka Umferðamessu og hvetja sérstaklega unga ökumenn til að mæta,þar sem fjallað verður um þá ábyrgð sem menn taka á sig í umferðinni. Nú fer sá tími í hönd sem allir eru á ferðinni um þjóðvegum landsins. Eins og við vitum er vegakerfið okkar á flestum stöðum alls ekki tilbúið að taka við þeim mikla umferðarþunga sem um vegina fer. Það er því full ástæða til að hvetja okkur öll að sína varúð og að allir taki höndum saman til að umferðin geti gengið áfallalaust fyrir sig.
Sigurður Jónsson

FURÐULEGT ?

07. maí 2008 klukkan 21:11
  • Alveg er ég viss um að margir hafa orðið undrandi við að heyra afkomutölur bankanna á fyrsta ársfjórðungi ársins. Miðað við fréttir að undanförnu hefði mátt búast við eymd og volæði hjá þeim. Allavega hefur margur ímyndað sér að ríkið þyrfti að gera ráðstafanir til að bjarga bönkunum svo ekki færi illa. Nú birast tölu um milljarða hagnað á þessum fyrsta ársfjórðungi. Almenningur hristir hausinn og botnar lítið í þessu öllu saman. Auðvitað er gott að bankarnir græða,en hvað með allt talið um hættuástandið hjá þeim.
  • Borgarstjóri og meirihlutinn í Reykjavík sæta nú harðri gagnrýni fyrir að ráða í toppstöðu án auglýsingar.
  • Toppstaða var búin til og ráðið í hana án auglýsingar.
  • Aðilinn sem ráðin var í stöðuna situr í nefndum og er formaður á vegum meirihlutans.
  • Um tímabundna ráðningu er að ræða og ráðningin afsökuð með því.
  • Staðan er vel launuð miðað við aðra starfsmenn.

Minnihlutinn í Reykjavík talar um að svona pólitískar ráðningar eigi ekki að eiga sér stað.Nú séu NÝIR TÍMAR og standa eigi faglega að ráðningu og það beri að auglýsa toppstöðu sem þessa. Skyldi þetta vera einsdæmi hjá bæjarfélögum? Eða hefur álíka gerst nýlega annars staðar. Fróðlegt væri að vita það.

Sigurður Jónsson

PUNKTAR EFTIR SILFRIÐ

06. maí 2008 klukkan 00:09
  • Það var alveg hreint með ólíkindum að hlusta á málflutninginn hjá Siv Framsónarfulltrúa og Katrínu fulltrúa Vinstri grænna í Silfri Egils í gær í umræðum um heilbrigðismálin.Þær stöllur hédu því blákalt fram að ríkisstjórnin væri á liðinni að einkavæða eða setja allt heilbrigðiskerfið í einkarekstur. Svo langt gekk Katrrín að halda því fram að stefnt væri að því að taka upp bandaríska kerfið, en allir vita hversu dýrt það er í því landi. Það breytti engu þótt Guðlaugur Þór,heilbrigðisráðherra og Björgvin,viðskiptaráðherra, segðu að það stæði ekki til að einkavæða heilbrigðiskerfið. Það væri vilji ríkisstjórnarinnar að allir sætu við sama borð hvað varðaði heilbrigðiskerfið. Það sem væri verið að fara yfir á hvern hátt best væri að nýta fjármagnið til að hægt væri að halda úti sem bestri heilbrigðisþjónustu. Þrátt fyrir þetta héldu þær Siv og Katrín áfram að staglast á því að víst ætluðu þeir að einkavæða. Ég trúi ekki að þær haldi það,en auðvitað vita þær að ef þær halda áfram og áfram með sinn klisjugjarna málflutning fer kannski einhver að trúa því að ríkisstjórnin stefni á að einkavæða allt og hætta með velferðakerfið sem við höfum í heilbrigðisgeiranum. Þetta er ómerkilegur málflutningur,því þær vita að allir fdlokkar vilja standa vörð um það góða kerfi sem við höfum í heilbrigðisþjónustunni.
  • Það var gaman að fylgjast með gömlu kempunum Jóni Baldvini og Ragnari Arnalds ræða um Evrópumálin og hvort skynsamlegt væri fyrir okkur að ganga í Evrópusambandið. Jón Baldvin taldi að allt yrði betra,vextir myndu lækka,stöðugleiki skapaðist, verðlag myndi lækka og lifskjör batna til muna. Ragnar var nú ekki eins sannfærður og sagði að við fengum engu ráðið um okkar sjávarútveg,við yrðum að afsala yfirráðum okkar þar. Hann sagði vöruverð ekki myndi lækka nema á einhverjum landbúnaðarvörum og innganga í Evrópusambandið yrði til þess að gera útaf viðíslenskan landbúnað.Hann sagði að allt tal um inngömgu myndi ekki leysa þann vanda sem þjóðin stendur nú frammi fyrir.
  • Eftir þessar umræður gömlu foringjanna er maður enn sannfærðari um að það þarf mun meiri umræður og upplýsingar til að hinn almenni borgari geti myndað sér skoðun hvort skynsamlegt væri að taka upp viðræður um inngönu.
Sigurður Jónsson

FLOTT HJÁ HEKLU

04. maí 2008 klukkan 20:13
Vesti óvinur almennings er verðbólgan. Hækkun hennar á eftir að fara illa með margan,ef ekkert verður að gert. Það er því mikið gleðiefni að til skulu vera fyrirtæki sem reyna að áhrif á þessa þróun. Frumkvæði Heklu er virðingarvert þ.e. að lækka nýja bíla um allt að 17%. Ef fleiri fyrirtæki fylgdu í kjölfarið yrði skellurinn ekki eins mikill fyrir alla alþýðu fólks. Ef ég væri í þeim hugleiðingum í dag að kaupa mér nýjan bíl myndi ég snúa mér til Heklu.
Sigurður Jónsson